Í öllu fræðslu- og ráðgjafarefni Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar eru nokkrir þættir sem sérstök áhersla er lögð á.

Hegðun barna er ekki meðfædd, þau læra smám saman af samskiptum við aðra. Þannig læra þau af þeim afleiðingum sem hegðun þeirra hefur í för með sér og með því að fylgjast með og herma eftir öðrum.

Börn og foreldrar þurfa að æfa færni sem verið er að tileinka sér. Oft þarf margendurteknar æfingar áður en færni festist í sessi.

Foreldrar eru mikilvægar fyrirmyndir barna sinna. Þetta þýðir að þeir þurfa að vera meðvitaðir um eigin hegðun og að vanda sig í návist barna sinna. En þetta þýðir líka að foreldrar geta markvisst notað eigin hegðun til að kenna börnum hegðun sem þeim finnst æskileg.

Uppalendur þurfa að ákveða hvaða færni og hegðun þeir vilja að börn tileinki sér. Kenna þessa þætti síðan markvisst og gæta þess að fylgjast með börnum og veita þeim athygli og aðra jákvæða svörun þegar þau sýna æskilega hegðun.

Samvera og virk samskipti foreldra og barna frá unga aldri ýtir undir tengslamyndum og viðheldur traustum tengslum. 

Börn þurfa að vita til hvers foreldrar ætlast af þeim. Skilaboð til barna og fyrirmæli þurfa því að vera skýr og skiljanleg. Sama á við um reglur, þær þurfa að vera sanngjarnnar, einfaldar og skiljanlegar og bæði börn og foreldrar þurfa að geta fylgt þeim.  

Uppeldi er vinna sem foreldrar þurfa að setja í forgang, sérstaklega í upphafi. Skipulagning, markmiðasetning og samstarf gerir verkið auðveldara og skemmtilegra og stuðlar að samkvæmni.

Skammir og tuð eru ekki árangursríkar aðferðir í uppeldi. Almennt er jákvæð svörun og verðlaun heppilegri en notkun viðurlaga, þótt væg viðurlög geti í sumum tilfellum stutt við kennslu æskilegrar hegðunar. Hörku eða líkamlegar refsingar á ekki að nota, enda bæði skaðlegar og gagnslausar í uppeldi.

(síða í vinnslu)