Í dag var Lone Jensen uppeldisráðgjaf á leikskólanum Borg með 3ja tíma námskeið fyrir starfsfólk um hugmyndafræði og helstu áherslur Uppeldi sem virkar. Gleði, áhugi og góðar samræður einkenndu námskeiðið og leikskólafólkið lýsti mikilli ánægju með það. Í leikskólanum Borg, sem er í Breiðholti, er hátt hlutfall barna af erlendum uppruna. Þar er unnið eftir menntastefnu sem leggur höfuðáherslu á að vinna með félagsfærni og sjálfseflingu og að börn fái að upplifa hluti og atburði af eigin raun. Áhersla er m.a. lögð á að börn læri að setja sig í spor annarra og tileikni sér sjálfstæða hugsun og frumkvæði. Þessi atriði rýma einstaklega vel við áherslur Uppeldi sem virkar.



