Foreldranámskeið Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar hluti aðlögunar í leikskólum Árborgar

Á síðastliðnu ári var farið í gang með breytta útfærslu aðlögunarferlis nýrra barna í leikskóla hjá sveitarfélaginu Árborg. Hluti af nýbreytninni var að bjóða foreldrum upp á að sitja uppeldisnámskeiðið í byrjun aðlögunar. Þessi tilhögun var prufukeyrð í nokkrum leikskólanna árið 2025 og að mati leikskólakennara þótti hún gefa góða raun. Í ár var ákveðið að allir leikskólarnir á svæðinu myndi bjóða foreldrum á námskeið í upphafi aðlögunar barnanna, í þetta skipti bæði á íslensku og ensku.