8 klst uppeldisnámskeið fyrir foreldra barna á leikskólaaldri. Haldið í gegn um fjarfundabúnað og því aðgengilegt foreldrum um allt land. Til að skrá sig á námskeiðið þarf að smella á hlekkinn „Smelltu hér til að skrá þig“ á auglýsingunni hér fyrir neðan (síða Skólaþjónustunnar) og skrá sig inn á svæðið (Mitt Reykjanes) með rafrænum skilríkjum (Innritun efst í hægra horni). Velja svo Umsóknir, listi af umsóknum og síðan Námskeið, Skráning á Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar (lillablár hnappur neðarlega). Þá birtist skráningarblað sem þarf að fylla út.


